Leita í fréttum mbl.is

Hlaupaplan vikuna 16.feb - 21.feb

Hæ Allir

Þá er maður stiginn upp úr pestinni sem hefur vægast sagt komið og farið síðustu vikuna. Vona að þið hin hafið sloppið við þetta. Nú styttist óhjákvæmilega mikið í vorið sem er gott og hefur maður tekið eftir því að birtan endist aðeins lengur fram á daginn sem er líka gott. Það styttist líka í Mývatnshlaupið 30.maí en nú eru 103 dagar til stefnu....og tíminn líður. Það er enn tími til að setja sér markmið til að stefna á fyrir hlaupið. Munið að keppt er í nánast öllum vegalengdum 3, 10, 21 og 42km svo allir í fjölskyldunni eiga að finna sér hlaup við hæfi.   

Planið fyrir þessa viku er á þessa leið.

Þri. 17.feb.

Upphitun 18:05 við Sundhöll
Hlaupið af stað 18:15 frá Sundhöll

Skokkum út að Toyota og tökum æfingar við Bílasölurnar. skokkum svo til baka og aðeins lengra þeir sem vilja.

Þrek og teygjur um 19:00 fyrir þá sem vilja í Sandvíkursalnum

fim. 19.feb

Hlaupið af stað kl.18:15 frá Sundhöll

4km
Farið frá Sundhöll og eftir Tryggvagötunni alla leið að Suðurhólum. Beygt til hægri og hlaupið meðfram Suðurhólum. Beygt inn til hægri, Norðurhólana og farið inn Nauthagann alla leið að Fossheiðinni. Beygt til hægri í átt að Sundhöll.

10km
Farið frá Sundhöll og eftir Tryggvagötunni alla leið að Suðurhólum. Beygt til hægri og hlaupið meðfram Suðurhólum alla leið að Engjavegi. Til hægri eftir Engjavegi og svo vinstri inn Fossveginn(aftur fyrir húsasmiðjuna). Hlaupið eftir Fossvegi og alla leið áfram inn Fossheiðina. Fossheiðin að Fsu og áfram eftir Langholtina að Byko. Frá Byko yfir Austuveg og meðfram ánni alla leið undir brúnna og framhjá kirkjunni. Síðan hlaupið inn Engjaveg og að Sundhöll.

Muna að teygja vel á á eftir.

Laugardagur 21.feb

Lagt af stað kl.11:00 frá Sundhöll

10km
Hlaupið að ljósunum og beygt til vinstri inn Engjaveg. Hlaupið að Langholti, beygt til hægri og Langholtið hlaupið að Erlurima. Erlurimi að Suðurhólum. Suðurhólarnir farnir að Eyravegi. Eyravegur að Þóristúni, Þóristúnið framhjá kirkjunni undir brúnna og áfram að MS. Yfir að Byko og áfram Langholtið að FSu og í átt að Sundhöll.

 kveðja Bragi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband