Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Hlaupaplan 20. - 26.apríl

Sæl Öll

Vonandi að allir hafi skemmt sér vel í afmælinu og séu klárir til æfinga.

Þriðjudagur 21.apríl

Upphitun kl.18:05 við Sundhöllina

Hlaupið af stað kl.18:15 frá Sundhöllinni

Skokkum niður að Árvegi og að Byko. Þaðan eftir Langholtinu og að Erlurima, beygt til vinstri inn Erlurima og hlaupum að Suðurhólum. Gerum æfingar eftir Suðurhólum  og Gagnheiðinni ef veður leyfir. Hlaupum síðan eftir Eyrarvegi, undir brúnna og Árveginn að Sundhöll. um 8 km.
Þeir sem vilja hlaupa lengra halda áfram austur og fara annað hvort aftur hjá Byko eða fara Laugardælahringinn.

Teygjur við Sundhöll eftir hlaup eins og alltaf

Fimmtudagur 23.apríl Sumardagurinn fyrsti

10km
Farið frá sundlaug að Árvegi. Hlaupið að veitunum og beygt til vinstri. Laugardælahringurinn tekin að þjóðveginum. Hlaupið aftur í átt að Selfoss og beygt við Byko. Langholtið hlaupið að Erlurima og beygt þar inn að Suðurhólum. Hlaupið að Eyravegi, undir brúnna og Árveginn að bankavegi. Beygt til hægri að sundlaug.

Laugardagur 25.apríl kosningadagur

10km
Farið frá Sundhöll og eftir Tryggvagötunni alla leið að Suðurhólum. Beygt til hægri og hlaupið meðfram Suðurhólum alla leið að Engjavegi. Til hægri eftir Engjavegi og svo vinstri inn Fossveginn(aftur fyrir húsasmiðjuna). Hlaupið eftir Fossvegi og alla leið áfram inn Fossheiðina. Fossheiðin að Fsu og áfram eftir Langholtina að Byko. Frá Byko yfir Austuveg og meðfram ánni alla leið undir brúnna og framhjá kirkjunni. Síðan hlaupið inn Engjaveg og að Sundhöll.

kveðja og kjósum nú rétt hvað svo sem það þýðir


Úrslit úr Píslarhlaupinu 10. apríl

Hér koma úrslitin úr Píslarhlaupinu sem haldið var á Föstudaginn langa.

 

5 km: 

1Sindri Pálmson240196-301923.35
2Rebekka Guðmundsdóttir060779-511924.00
3Skúli Geir Ólafsson190794-377924.52
4Pétur Jónsson010597-250946.03
5Markús Ívarsson200747-364925.58
6Ágústa Margrét Ólafsdóttir260896-296927.47
7Tryggvi Ágústsson010455-278929.34
8Auður Eva Auðunsdóttir130379-478930.29
9Heiðdís Þorsteinsdóttir310560-413934.06
10Sigurður Tómasson Hjartarson180500-306037.25

 

10 km:

1Aníta Hinriksdóttir130196-220941.34
2Bryndís Erntsdóttir240171-600941.38
3Ingvar Garðarson290158-591942.25
4Jórunn Viðar Valgarðsdóttir160669-365946.03
5Sigríður E. Sigmundsdóttir06-90364-820948.28
6Pétur I. Frantzson060355-460949.19
7Bjarni Rúnar Jónasson131091-214949.41
8Jón Gauti Jónsson010874-535951.03
9Hróbjartur Eyjólfsson150466-539951.05
10Kim Andersen120977-210952.20
11María Pálsdóttir180874-496953.00
12Anna María Óladóttir140854-379953.21
13Gísli E. Jónsson250376-464953.36
14Linda Björk Sigmundsdóttir120480-553955.41
15Jóhannes Kristjánsson151061-397956.00
16Þórunn Elva Bjarkadóttir010376-564956.12
17Jónas Bjarnason130956-335956.38
18Hróðný Hanna Hauksdóttir130969-348958.00
19Ástgeir Ingi Valtýsson010197-252958.36
20Valtýr Þórisson250968-507958.37
21Eydís Katla Guðmundsdóttir211162-724959.19
22Þorsteinn Sverrisson160764-414959.28
23Daði Friðriksson100567-369959.43
24Helga Baldursdóttir310162-775960.27
25Silja Dröfn Sæmundsdóttir110272-340961.33
26Jónína Birna Björnsdóttir201071-488964.07
27Inga Sólnes110451-431966.24

 


Hlaupaplan 13. - 19.apríl

Sæl Öll

Það er afmælisvika frískra flóamanna og að því tilefni ætla allir að mæta og hlaupa í vikunni.

Nú er ekki nema 47 dagar í Mývatnshlaupið og auðvitað eru allir búnir að setja sér markmið. Nú er því rétti tíminn til að fara að dusta rykið af tjaldinu/tjaldvagninum/fellihýsinu/hjólhýsinu eða húsbílnum. Kanna hvort allar stangir séu heilar eða nóg loft í dekkjunum, já og þeir sem eru grand á því og gista á hóteli þá er gott að panta í tíma. Þessir dagar eru fljótir að hverfa og þá er betra að vera viðbúinn þegar leggja á í hann. Síðan er bara að halda áfram að mæta og æfa vel. 

Þriðjudagur 14.apríl

Upphitun kl.18:05 við Sundhöll Selfoss

Hlaupið af stað kl.18:15 frá Sundhöll Selfoss.
Þrekhringur - Langholtshringurinn
3.km
Farið af stað frá Sundhöll og hlaupið að Tryggvagötu, farið að FSu og þaðan Langholtið að Engjavegi. Engjavegur að ljósunum og hægri að sundhöll. Það verða síðan stoppistöðvar á leiðinni þar sem teknar verða æfingar.
Hringtorgið við FSu - 20 hnébeygju
Hulduheimar - 10 armbeygjur + 10 hnébeygjur
Engjavegur við hesthúsin - 20 sprellikarlar 
Við Endalínuna - 10 framstig á hvorn fót og 20 kálfalyftur

Hlaupnir verða tveir hringir og síðan létt skokk, teygjur við Sundhöllina í lokinn.

Fimmtudagur 16.apríl

10,5 km
Farið frá sundlaug að Tryggvagötu Hlaupið að hringtorginu við Fsu. Farið inn Fossheiðina og að Eyravegi. Til hægri að Þóristúni. Inn Þóristún að brúnni og meðfram Árvegi. Hlaupið að Byko og inn Engjaveg. Engjavegur alla leið að Eyravegi. Vinstri við Eyraveg og að Suðurhólum. Suðurhólar að Erlurima og þaðan að Langholti. Hægri við Langholtið og hlaupið aftur að Engjavegi og beygt það í átt að sundlaug. Hlaupa á góðu tempói.

Föstudagur 17.apríl - AFMÆLI

Laugardagur 18.apríl

Votmúlinn fyrir þá sem fóru snemma heim úr afmælinum.

kveðja Bragi


10 ára afmælishátíð Frískra Flóamanna!!!!!!!!!!

Halló halló!!!!! Er ekki lag að skrá sig á 10 ára afmælishátíð Frískra Flóamanna og vera með í fögnuðinum. Nú fer hver að verða síðastur því að síðasti séns nálgast óðfluga.

Hægt er að skrá sig símleiðis í síma:  8446617/ 8579903

netleiðis:  lisus@simnet.is

Og munið að allir eru velkomnir.


Hlaupaplan yfir páskana

Sæl Öll

Nú er páskahátíðin að ganga í garð með tilheyrandi veislustússi og rólegheitum. Þeir sem vilja reyna að nýta góða veðrið og skokka aukalega eða komast ekki í Píslarahlaupið á föstudaginn langa geta nýtt sér eftirfarandi leiðir.

10km
Farið frá sundlaug að Árvegi. Hlaupið að veitunum og beygt til vinstri. Laugardælahringurinn tekin að þjóðveginum. Hlaupið aftur í átt að Selfoss og beygt við Byko. Langholtið hlaupið að Erlurima og beygt þar inn að Suðurhólum. Hlaupið að Eyravegi, undir brúnna og Árveginn að bankavegi. Beygt til hægri að sundlaug.

Síðan eru náttúrulega votmúlahringurinn góður, litli eða stóri

Gleðilega páska 

kveðja Bragi


Hlaupaplan þriðjudaginn 7.apríl

Halló allir

Set inn þriðjudaginn núna og svo restina af vikunni annað kvöld.

Þriðjudagur 7. apríl

Upphitun kl.18:05 við Sundhöllina

Hlaupið af stað kl.18:15 frá Sundhöllinni

Skokkum niður að Árvegi og að Byko (æfingar ef veður leyfir). Þaðan eftir Langholtinu og að Erlurima, beygt til vinstri inn Erlurima og hlaupum að Suðurhólum. Gerum æfingar eftir Suðurhólum  og Gagnheiðinni ef veður leyfir. Hlaupum síðan eftir Eyrarvegi, undir brúnna og Árveginn að Sundhöll. um 8 km.
Þeir sem vilja hlaupa lengra halda áfram austur og fara annað hvort aftur hjá Byko eða fara Laugardælahringinn.

Nú er búið að segja upp Sandvíkursalnum og því teygjum við fyrir framan Sundhöllina eftir æfingu.

kv. Bragi

 


Hlaup hlaup en ekki gúmmíhlaup!

Viljum vekja athygli ykkar á að þeir sem hafa áhuga á að taka æfingarhlaup á morgun laugardaginn 4 apríl að það er stutt til okkar í Úlfljótsskálann ef þið viljið fá góða hlaupafélaga og breyta um umhverfi. Ef hlaupin er heill hringur í kringum sogið gerir það 26km. Vel er hægt að fara styttri vegalengdir og lengri ef menn vilja.

Endilega að vera með. lagt verður af stað kl 10:00

Góð sturtuaðstaða og gufa eftir hlaup.

Allir velkomnir. 

Kveðja Pétur og Lísa. 

 


Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband