Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015

Friskir Flóamenn fjölmenntu í Hamarshlaup

11114233_373634122831553_6670446245407402846_oAnnað hlaup í hlaupaseríu Hamars var haldið laugardaginn 16. maí. 59 luku hlaupinu sem er 20 km utanvegahlaup. Þrettán Frískir mættun til leiks. Fyrstur þeirra var Auðunn Jóhannsson á 1.43.35. og var hann jafnframt þriðji í sínum aldursflokki. Sarah Seeliger var fyrst Frískra kvenna á 1.50.06 og var þriðja í sínum aldursflokki. Úrslitin má sjá á hlaup.is.


Ingileif og Börk með HSK-met

Ingileif Auðunsdóttir og Björk Steindórsdóttir settu báðar HSK-met í sínum aldursflokkum í 10 km götuhlaupi í Intersporthlaupinu eins og vindurinn 1. maí sl. Ingileif hljóp á tímanum 57:49 og Björk á tímanum 49:09. Glæsilegt hjá þeim og til hamingju.IMG_3105IMG_8387
 


Intersporthlaupið eins og vindurinn

IMG_3079Hlaupið okkar, sem er 10 km, fór fram í dag í blíðskaparveðri, sól og hægum norlægum andvara. Hlaupið var frá Intersport og niður Gaulverjabæjarveg að Timburhól. Mjög góðir tímar náðust í hlaupinu og margir að bæta sína bestu tíma.  Ívar Trausti Jósafatsson var fyrstur karla á nýju brautarmeti, 35:51. Þessi tími er aðeins 5 sek frá eigin íslandsmeti í aldursflokki 50-55 ára sem hann setti í Brúarhlaupinu á sl. ári. Fyrst kvenna var hún Anne okkar á 44:20. Hér eru tímar Frískra: Anne Cattenoz - 44:20, Sarah Seeliger - 45:40, Daníel - 45:42, Sigurður Frímann - 47:49, Vigfús - 48:14, Björk Steindórsdóttir - 49:07, Hildur Grímsdóttir - 51:36 og Ingileif - 57:49. Fjórir af átta á palli og allt konur. Flottur árangur. Úrslitin verða birt á hlaup.is. Nokkrar myndir frá hlaupinu eru í myndasafni. 


Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband