Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2014

Frískir í Hamarshlaupinu

IMG_7890Fimm Frískir Flóamenn tóku þátt í Hamarshlaupinu sem er 24 km utanvegahlaup í fjallendinu innan við Hveragerði. María Marons var önnur í flokki kvenna á 2:34:59 og Þorsteinn Máss. var þriðji í karlaflokki á 2:37:13. Þátt tóku 28 hlauparar í ár og kláruðu allir. Fyrstur í mark var Bjarki Freyr Rúnarsson á 2:01:03 en fyrst kvenna var Melkorka Á. Kvaran á 2:26:48.  Úrslitin eru hér http://www.hamarsport.is/urslit-i-hamars-hlaupinu-2014/.

Frískir með fimm HSK-met

IMG_9672
Frískir Flóamenn gerðu það heldur betur gott í Laugavegshlaupinu settu fimm HSK-met. Sarah Seeliger setti HSK met í í kvennaflokki og flokki 35-39 ára kvenna, Hún hljóp á 6:26:07 klst. Björk átti metin í þessum flokkum, 6:37:22 sett árið 2008.
Helgi Kristinn Marvinsson setti met í flokki 60 – 64 ára flokki karla, hljóp á 6:59:53 klst.  Hann fékk viðurkenningu fyrir sinn 10. Laugaveg og það í röð.
Þorsteinn Tryggvi Másson  bætti HSK metið í flokki 45 – 49 ára flokki karla, en hann hljóp á 6:14,36 klst. Metið í þessum flokki var ársgamalt, Jón Gísli Guðlaugsson hljóp á 6:22,05 klst. í fyrra. Björk Steindórsdóttir bætti HSK metið í flokki 45 – 49 ára flokki kvenna. Hún hljóp á 6:44:16 klst. Anna Björg Stefánsdóttir átti metið, 7:43,02 klst. sett árið 2012.  Til hamingju öll.

Laugavegshlaupið 2014

IMG_9593

Laugavegshlaupið fór fram í gær í 18. sinn við ágætar aðstæður. Nokkur kuldi og rigning var á hluta leiðarinnar en vindur í bakið mestan hluta lei[arinnar. 345 hlauparar lögðu af stað úr Landmannalaugum kl. 9 um morguninn og 330 skiluðu sér í mark í Þórsmörk. Sextán Frískir Flóamenn tóku þátt og stóðu sig vel.  Tímarnir eru hér að neðan.  Nokkrir voru að fara í fyrsta sinn aðrir að bæta fyrri tíma sína.  Kiddi Marvins. tók sinn 10. Laugaveg í röð, gerði aðrir betur.  Til hamingju öll, þið eruð hetjur.

35 Frískir Flóamenn stóðu vaktina á hlaupaleiðinni og fórst að vanda vel úr hendi. 

Þorbergur Ingi Jónsson sigraði  í hlaupinu á tímanum 4: 7: 47 og sló þar með brautarmet Björns Margeirssonar frá 2012 um rúmar tólf mínútur. Elísabet Margeirsdóttir var fyrst kvenna í mark á tímanum 5 : 34: 05  og bætti eigin tíma um þrettán mínútur.  Myndir í albúmi.

Tímar Frískra Flóamanna:

6:26:07 Sarah Seeliger 

6:44:16 Björk Steindórsdóttir

6:50:24 Steingerður Hreinsdóttir

8:20:46 Anna Björg Stefánsdóttir

8:20:46 Aðalbjörg Skúladóttir

 

5:45:47 Stefán Reyr Ólafsson

6:06:53 Wieslaw Piotr Nieradko

6:14:36 Þorsteinn Tryggvi Másson 

6:22:22 Sverrir Sigurjónsson 

6:24:23 Jóhann Helgi Konráðsson

6:50:16 Reynir Guðmundsson

6:59:53 Helgi Kristinn Marvinsson

7:20:20 Andri Ólafsson 

7:38:25 Vigfús Eyjólfsson

7:46:29 Ragnar Heiðar Karlsson  

8:01:04 Börkur Brynjarsson

 


Fundur vegna Laugavegshlaupsins

IMG 0997Boðað er til fundar með fulltrúum Reykjavíkurmaraþons og þeim FF sem ætla að vera við aðstoð á Laugaveginum þann 12. júlí. Fundurinn verður mánudaginn 7. júlí kl. 18 á Búnaðarmiðstöðinni Selfossi (húsi Krónunnar).


Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband