Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013

Frískir Flóamenn í vormaraþoni

IMG 1436Vormaraþon var haldið í Reykjavík í dag. Hlaupið var heilt og hálft maraþon. Fjölmargir tóku þátt í heldur óhagstæðu veðri. Þrír Frískir Flóamenn tóku þátt.  Steini hljóp heilt á 3.21.56 og var fjórði í mark.  Wieslaw Piotr hljóp hálft á 1.31.14 og Vigfús á 1.50.58. Aldeilis flott hjá þeim.

INTERSPORTHLAUPIÐ UNDAN VINDI 11. MAÍ

Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn stendur fyrir Intersporthlaupinu undan vindi þann 11. maí nk. og hefst það kl. 11. Lend hlaupsins er 10 km og hefur hún verið löglega mæld.

Hlaupaleiðin er frá Intersporti [BYKO] á Selfossi um Larsenstræti og  Gaulverjabæjarveg.  Hlaupið hefst eða endar við BYKO, fer það eftir því hvort hagstæðara er eftir vindátt.  Hlaupaleiðin er um sléttlendi Flóans.

Forskráning er á hlaup.is og lýkur 9. maí kl. 21:00.  Skráning og afhending keppnisnúmera er í BYKO Selfossi frá kl. 16-18 10. maí.  Keppnisnúmer verður einnig hægt að nálgast á hlaupadegi frá kl. 9:30 í BYKO. Þátttökugjald er kr. 2.500. Rúta flytur keppendur að rásmarki, brottför er frá BYKÓ kl. 10:20.  Keppendur fá frían aðgang í Sundhöll Selfoss eftir hlaup.

Aldursskipting bæði hjá konum og körlum; 39 ára og yngri, 40-49, 50-59, 60 ára og eldri. 

Verðlaun verða fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki.

Sérverðlaun frá Intersport verða fyrir fyrsta karl og fyrstu konu.

Verðlaunaafhendig verður við BYKO að hlaupi loknu.

Tiðvalið hlaup til að bæta sig í 10 km hlaupi.

 Nánari upplýsingar veita  Leifur s: 842 3150 og Magnús s: 840 6320.

 

 


Sumardagurinn fyrsti

Frískir Flóamenn hlupu frá Sundlauginni á Selfossi að lauginni á Stokkseyri í dag í blíðskaparveðri en heldur svölu. Hlaupið var m.a. í tilefni af því að sumardaginn fyrsta fyrir 13 árum byrjaði Ingileif að stunIMG 9300da hlaup. Allir sælir eftir heitan pott í Stokkseyrarlauginni.  Ingvar skellti sér í ÍR hlaupið í Rvík og hljóp hratt að vanda. Úrslitn eru á hlaup.is.

Frískir Flóamenn halda Hlaupið undan vindi 11. maí

Nú þrufum við að taka höndum saman og hjálpast að við hlaup sem við Frískir Flóamenn stöndum fyrir laugardaginn 11. 5 2013 klukkan 11:00. Hlaupið nefnist Intersporthlaupið undan vindi. 
Okkur vanta ca. 15 starfmenn í hlaupið og stendur hlaupið yfir í ca. tvo tíma.
Það er frábært að hlaupahópur eins og okkar skuli geta boðið upp á fría hlaupaþjálfun en við þurfum að getað fjármagnað þetta og vonandi verður þetta hlaup einn liður í því svo endilega hjálpið okkar til þess að við getum áfram haft þá sérstöðu að bjóða upp á þetta okkur að kostnaðarlausu.
Þið sem getið komið sendið okkur línu á netfangið friskirfloamenn1@gmail.com.
Stjórnin

Frískir Flóamenn í Flóahlaupinu

IMG_7131Flóahlaup Umf. Samhygðar fór fram í dag 13. apríl í 35. sinn. Hlaupið var fjölsótt að vanda og á annan tug Frískra Flóamanna mættu. Aðstæður voru fínar nokkur vindur af NA og þurrt en nokkuð svalt. Flóamenn voru frískir að vanda og fimm Frískir komust á pall. Fullur salur af hlaupurum gæddu sér á kræsingum Samhygðarmanna eftir hlaup. Alltaf frábær stemmning í Flóahlaupinu.  Takk Markús og félagar. Myndir í albúmi og úrslitin á hlaup.is.

Að loknu Parísarmaraþoni

 

891949_10200330153954432_2005134939_o

Þá hafa Bárður og Kiddi lokið Parísarmaraþoni en það fór fram í gær 7. apríl. Kiddi lauk á tímanum   3.57.36  og Bárður var á 4.25.54, flott hjá þeim.

36 Íslendingar luku hlaupinu og er það líklega stærsti hópur Íslendinga sem hefur tekið þátt hingað til.

Fjöldi þátttakenda í Parísarmaraþoninu var rúmlega 40.000 sem setur það í flokk með stærstu hlaupum heims. Yfir 100 þjóðir tóku þátt og voru útlendingar um 16.000 eða 40% þátttakenda. Hlaupið fór fram í miðborg Parísar þar sem sjá má mörg af helstu kennileitum borgarinnar.

Tíma Íslendinganna má sjá á hlaup.is.


 

 
Bárður og Kiddi að loknu Parísarmataþoni. Myndin er af fésbókarsíðu Bárðar.

Frískir Flóamenn í Parísarmaraþoni

Parísarmarathonin er á morgun [sunnudag].  Þar eiga Frískir Flóamenn tvo fulltrúa, Kristinn Marvinsson og Bárð Árnason. Hægt verður að fylgjast með þeim á app fyrir android á, https://play.google.com/store/apps/details?id=com.netcosports.andmarathondeparis

Kiddi er númer 45429 og Bárður er númer 45417. 




Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband