Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

Hlaupum í góða veðrinu

IMG 7858Nú er veðrið til að hlaupa og undirbúa hlaup sumarsins, nóg framboð og fjölbreytt af almenningshlaupum. Minni á sameiginlega hlaupatíma Frískra Flóamanna á þiðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15 á laugardögum kl. 10:00 og sunnudögum kl. 10:30. Farið frá Sundhöll Selfoss.

Æfingaáætlun vikuna 14.-20.maí

Sælir félagar

Hérna er æfingaáætlun vikunnar. Það er spurning um að hafa æfinguna á fimmtudaginn um morguninn þar sem að
það er frídagur. Ræðum það á morgun:)

Síðasta æfingin mín er á fimmtudaginn og vona ég að sem flestir sjái sér fært um að mæta. Hinum þakka ég kærlega fyrir
samveruna síðastliðinn 2 ár, það eru búin að vera algjör forréttindi að fá að þjálfa svona skemmtilegan og duglegan hóp.
Mjög góð reynsla í reynslubankann.

Takk kærlega fyrir mig :)
Salóme Rut


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Frískir Flóamenn hlaupa á vor í Árborg 19. maí

IMG 1920

 Laugardagurinn 19. maí ætla Frískir Flóamenn að hlaupa Stokkseyrarhringinn. Lagt verður af stað kl. 9:00 frá Sundhöll Selfoss. Hringurinn er 35km. Farið verður niður Eyrarbakkaveg, að Stokkseyri og um Gaulverjabæjarveg til baka. Allir eru velkomnir, hvar sem er á hringnum. Rúta fylgir á eftir fyrir þá sem vilja hlaupa með hluta af leiðinni.

Æfingaáætlun vikuna 7.-13.maí

Sælir félagar

Hérna er áætlun vikunnar..... Sigurbjörn Árni Arngrímsson doktor í Íþrótta- og heilsufræði og þaulreyndur hlaupari verður með
æfinguna á fimmtudaginn og hvet ég alla til að mæta, líka þá sem hafa ekki mætt í einhvern tíma. En þetta er fínt tækifæri til þess að
koma sér af stað fyrir sumarið. Bjössi mun fara í hlaupastíl og hvað sé gott að hafa í huga í sambandi við hlaup o.fl.:) Við verðum á vellinum
en hittumst að sjálfsögðu við sundhöllina.

Kv. Salóme


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband