Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014

Sigrún þriðja á nýju HSK meti í hálfu maraþoni í Reykjavík í dag. Ingvar með HSK met í 5 km.

photo-5Vormaraþon fór fram í blíðviðrinu í Reykjavík í dag.  Keppt var í heilu og hálfu maraþoni.  Sigrún okkar Sigurðardóttir varð nr. 3 í flokki kvenna á tímanum 1.31.49 sem er jafnframt nýtt HSK met. Keppnin var jöfn því þrjár fyrstu konur voru á sömu mínútunni. Þá setti Ingvar HSK met í flokki 55-59 ára í 5 km götuhlaupi á sumardaginn fyrsta. Tíminn hjá honum var 19.46. Glæsilegt hjá þeim. 

Intersporthlaupið undan vindi 1.maí

Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn stendur fyrir Intersporthlaupinu undan vindi þann 1.  maí nk. og hefst það kl. 13.

 
Hluti hlaupara fyrir utan IntersportLengd hlaupsins er 10 km og hefur það verið löglega mælt eftir reglum FRÍ. Hlaupaleiðin er frá Intersporti [BYKO] á Selfossi um Larsenstræti og Gaulverjabæjarveg.  Hlaupið hefst eða endar við Intersport, fer það eftir því hvort hagstæðara er eftir vindátt.  Hlaupaleiðin er um sléttlendi Flóans. Forskráning er á hlaup.is og lýkur 30. apríl kl. 21:00.  Skráning og afhending keppnisnúmera er í Intersport Selfossi frá kl. 16-18  þann 30. apríl. Ekki hægt að greiða með korti.  Keppnisnúmer verður einnig hægt að nálgast á hlaupadegi frá kl. 11 á sama stað. Þátttökugjald er kr. 2.500. Rúta flytur keppendur að eða frá rásmarki, brottför er frá Intersport kl. 12:20.  Keppendur fá frían aðgang í Sundhöll Selfoss eftir hlaup.

Aldursskiping bæði hjá konum og körlum;

  • 39 ára og yngri
  • 40-49
  • 50-59
  • 60 ára og eldri

Verðlaun verða fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki.

Sérverðlaun frá Intersport verða fyrir fyrsta karl og fyrstu konu og úrdráttaverðlaun.

Verðlaunaafhending verður við Intersport að hlaupi loknu.

Tilvalið hlaup til að bæta sig í 10 km hlaupi.

Nánari upplýsingar veita  Leifur s: 842 3150 og Magnús s: 840 6320.

 


Sigrún í Manchestermaraþoni

SIGRÚN HAUSTMARAÞON 2013Sigrún hljóp maraþon í Manchester í dag, endaði á 03:25:09 og varð í 51. sæti í kvennaflokki og 22. sæti í sínum aldursflokki. Sigrún  bætti sinn fyrri árangur um meira en 3  mín. Flott hjá henni.  Sigrún fór fyrri hluta hlaupsins á feikna hraða en millitíminn á 10 km var tæpar 44 mín og  tæpar 1:36 eftir hálft.  Seinni hluti hlaupsins var hægari. Til hamingju Sigrún.

Frískir fjölmenntu í Flóahlaupið

IMG_9563Frískir Flóamenn fjölmenntu í Flóahlaupið í dag.  Aðstæður voru þokkalegar, austlægur vindur, hlýtt en það rigndi. Góður vindur var í bakið síðustu tvo km. Auður og Bjarni voru að fara sitt fyrsta keppnishlaup og stóðu sig vel. Nokkrir voru að bæta sína persónulegu tíma. Wieslaw vann 50 ára flokkinn í 10 km á 40:25, og Ingvar var þriðji á 42:30, Magnús var annar í 60 ára flokknum.  80 hlauparar þreyttu 10 km hlaupið, fyrstur þeirra var stórhlauparinn Kári Steinn Karlsson á rúmum 31 mín og er það brautarmet. Svava Rán Guðmundsdótir var fyrst kvenna á 41:03. Flott hlaup og mmm góðar kökur á eftir ;). Myndir í albúmi. Úrslitin eru á hlaup.is.

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband