Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Jólahlaup Frískra

20161215_172706Nú nálgast jólin og ýmsir jólaviðburðir í gangi.  Þann 15. desember sl. var hið árlega jólahlaup Frískra Flóamanna. Frískir settu á sig jólasveinahúfuna og svo var sprellað, sungið og hlaupið um bæinn.  Á leiðinni var komið við hjá Frískastaurnum við Nauthaga og Fríska skiltið afhjúpað við hátíðlega athöfn. Hróbjartur hafði milligöngu um skiltagerðina en skiltið var gert á Litla-Hrauni. Eftir ávarp Sigmundar afhjúpuðu Hróbjartur og Bárður skiltið. Í lokin var drukkið ljúffengt rommkakó og piparkökur með í ökuskóla Dýrfinnu. Takk fyrir skmmtilegt jólahlaup skemmtinefnd. Fleiri myndir í albúmi.


Heimsókn að Sólheimum

14445107_945235998919639_6788159974558616377_o.jpgLaugardaginn 24. september fóru Frískir Flóamenn í sína árlegu heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi. Farið var með rútu að Borg og hlaupið þaðan að Sólheimum. Eftir súpu og sund var afhentur framfarabikar Frískra Flóamanna til íbúa á Sólheimum. Í ár hlaut hinn landsþekkti Reynir Pétur bikarinn, en hann hefur alla tíð verið mjög virkur í hreyfingu, gekk m.a. hringinn um Ísland fyrir rúmum 30 árum. Reynir er enn að og gengur gjarna eða hjólar Sólheimahringinn.

 


Uppskeruhátíð Frískra Flóamanna

Uppsk14500230_946204392156133_83456029294584448_o.jpgeruhátíð Frískra Flóamanna var haldin í Eldhúsinu 24. september sl. Þar voru hlauparar ársins karla og kvenna og þeir sem sýnt höfðu mestu framfarir heiðraðir.  Stórhlaupararnir Sigrún og Steini voru útnefnd hlauparar ársins og Arna Ír og Össur fengu viðurkenningu fyrir mestu framfarir. Snæddur var ljúffendur kvöldverður og haft gaman. Kjörin var ný skemmtinefnd og í henni eru Össur, Eydís Katla og Dýrfinna. Fráfarandi skmmtinefnd var þakkað fyrir góð störf. 


Fríska Sólheimahlaupið laugardaginn 24. september

Hið árlega og stórskemmtilega Fríska Sólheimahlaup fer fram laugardaginn 24. sept nk. Hlaupið er frá Borg kl. 10 að Sólheimum, sem eru um 9 km, einnig má hjóla. Engin tímataka. Farið með rútu frá sundlauginni á Selfossi kl. 9:15. Eftir hlaup, sund og súpu (hver borgar fyrir sig) verður framfarabikar Frískra Flóamanna afhentur íbúa á Sólheimum.Heimkona áætluð kl. 14. Allir eru velkomnir, makar og vinir og aðrir hlauparar eða hjólarar.  Svo er það uppskeruhátíðin um kvöldið. IMG 1210


Sigrún íslandsmeistari í maraþoni

 

20160820_120359

Reykjavíkurmaraþon fór fram laugardaginn 20 ágúst í blíðskaparveðri. Frískir Flóamenn fjölmenntu, hátt í 30 renndu sér 10 km, hálft eða heilt maraþon og maraþon boðhlaup og stóðu sig vel að vanda. Sigrún gerði sér lítið fyrir og var fyrst íslenskra kvenna í mark í maraþoni og varð þar með íslandsmeistari en maraþonhlaupið var jafnframt íslandsmeistaramót. Sigrún sigraði með glæsibrag en hún endaði á tímanum 03:23:53 (flögutími 03:23:38) og var rúmum 17 mín á undan næstu íslensku konu. Þetta er fyrsti íslandsmeistaratitill hjá Frískum Flóamönnum. Tími Sigrúnar er jafnframt HSK og Selfossmet í frokki 35-39 ára kvenna. Til hamingju Sigrún með þennan frábæra árangur. Reynir, Renuka og Vigfús fóru einnig maraþon. Eftir hlaup komu Frískir Flóamenn saman fyrir framan MR og fögnuðu góðum degi.20160820_130258_resized


Brúrhlaupið, Arna Ír setti met.

13876110_1295312327168517_1353986297587240321_nBrúarhlaup Umfs var haldið laugardaginn 6. ágúst sl.í rjómablíðu. Frískir fjölmenntu og stóðu sig vel að vanda. Arna Ír var þriðja í sínum aldursflokki(40-49 ára)í 10 km á tímanum 45:40 og setti um leið HSK- og Selfossmet. Sigrún var þriðja ði  flokki kvenna í 10 km á 41:50 og vann sinn aldursflokk (30-39ára). Ingileif og Sigmundur sigruðu 60 ára flokkana í 10 km og Magnús var þriðji. Benedikt var þriðji í 19-39 ára í 10 km en þar sigraði Bragi Bjarnason. Þótt aðrir Frískir væru ekki á palli stóðu þeir sig með prýði. Alltaf gaman og stemmning yfir Brúrahlaupinu. Úrslitin má sjá á timataka.net.


Wieslaw vann Hamarshlaupaseríuna

IMG 9600Síðasta hlaupið í Hamarshlaupaseríunni fór fram, laugardaginn 30. júlí.  Serían samanstóð af þremur 19 km og einu 24 km utanveganvegahlaupi. Wieslaw FF náði bestum árangri samanlagt í hlaupaseríunni og fékk 30 stig. Wieslaw var þriðji karl í hlaupinu á laugardaginn og Sigrún Sigurðardóttir vann kvennaflokkinn. Glæsilegt hjá þeim. Úrslitin má sjá á hlaup.is   


Friskir Flóamenn í Laugavegshlaupinu. Arna Ír setti HSK-met.

IMG_2439IMG_2449Laugavegshlaupið fór fram í fínum aðstæðum laugardaginn 16. júlí. 462 hlaupari lagði af stað úr Landmannalaugum en 408 luku hlaupinu og hafa þeir aldrei verið fleiri. 

36 Frískir Flóamenn og 10 úr Björgunarfélagi Árborgar stóðu vaktina, þjónustuðu hlauparana og hvöttu þá til dáða. Þetta er mikil vinna en þegar allir leggja sig fram við að skila sínu verður árangurinn eftir því, ánægðir hlauparar bera þess vitni. 

Sex Frískir hlupu kílómetrana 55. Arna Ír var áttunda í sínum aldursflokki og setti um leið HSK-met í flokki 45-49 ára, hún lauk hlaupinu á 6:35:00. Glæsilegt hjá henni en hún var að fara sinn fyrsta Laugaveg. Þorsteinn Már var áttundi í sínum aldursflokki, kom í mark á 6:11:17 og var að bæta sinn fyrri tíma. Hildur Gríms, sem var að fara sinn fyrsta Laugaveg,Siggi Gunnars, Reynir og Steingerður, stóðu sig öll með prýði. Til hamingu hlauparar.

 

 


Frískir Flóamenn aðstoða við Laugaveginn 16. júlí

Nú nálgast Laugavegshlaupið sem verður nk. laugardag 16. júli. Fer að verða fullmannað.
Varðandi ferðir þá er mæting fyrir þá sem fara á Jökultungur- Emstrur - Álftavatnssvæðið í Björgunarmiðstöðina við Árveg á laugardagsmorgun kl 5.30 
Ágúst Ingi bílstjóri hyggst leggja af stað í Hrafntinnuskeri kl. 18 á föstudag mæting í Björgunnarmiðstöðina við Árveg. Þeir sem fara í Þórsmörk fara með rútu frá N1 Selfossi kl. 17:00 föstudag. Allir hafi nesti fyrir sig fyrir daginn og veri vel búin.  Svo er bara að brosa og hvetja hlauparana. Gangi ykkur öllum vel, hlauparar og starfsmenn. IMG_0173


Skógræktarfélag Selfoss velgjörðarfélag Frískra Fóamanna

Frískir Flóamenn hlupu í Hellisskóg í blíðunni í gær komu við hjá hellinum og afhentu Skógræktarfélagi Selfoss viðurkenningu sem velgjörðarfélag Frískra Flóamanna. Félagið færði Skógræktarfélaginu fimm reyniviðarplöntur að því tilefni sem voru gróðursettar ásamt sitkagerni í grennd við hellinn. Félagið fær viðurkenninguna fyrir gott starf í trjáplöntun, stígagerð og uppsetningu æfingatækja sem skapað hefur kjöraðstæður til hlaupa og útivistar sem Frískir Flóamenn hafa nýtt sér óspart í gegnum tíðina.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband