Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Nýjar myndir í myndaalbúm

Nú eru komnar myndir úr Bláskógaskokki frá í sumar í myndaalbúm.

Myndasíning !!!

Minnum á sýningu myndarinnar sem tekin var upp á Laugveiginum 2009. En þar leika Frískir Flóamenn að sjálfsögðu stórt hlutverk.

Sína á myndina þriðjudaginn 25 ágúst eftir æfingu eða um kl 20:00 á Úlfljótsskála.

Bestu kveðjur Pétur og Lísa Wink

 


Meira myndapláss

Nú er ég búin að kaupa meira myndapláss fyrir síðuna okkar svo nú er um að gera að deila með okkur hinum þeim myndum sem þið hafið tekið síðast liðna mánuði.

kv. Guðrún Lára


Hlaup frá Hveragerði til Selfoss

Á fimmtudaginn næsta, 30. júlí, er ætlunin að hlaupa frá Hveragerði til Selfoss, ca 21 km. Hist verður við sundlaug Selfoss klukkan 17:30 og sameinast í bíla til sundlaugar Hveragerðis. Þaðan verður hlaupið sem leið liggur að sundlaug Selfoss aftur. Allir velkomnir með og munið, einungis 3 vikur í Reykjavíkurmaraþonið.

Góða ferð!
kv. Guðrún Lára


Stokkseyrarhlaup!

Næsta þriðjudag 28 júní ætlum við að hlaupa lengri leiðina niður á Stokkseyri og enda í sundi. Við þurfum að koma sundfötum á Stokkseyri og einhverja bíla til að ferja okkur til baka. Lagt verður af stað frá sundlauginni á Selfossi kl 5:30

Allir að mæta með góða skapið Grin




 


Breyttur hlaupatími!

Höfum breytt hlaupatímanum núna í sumar og er hann sem hér segir.

Mánud:5:30 

Þriðjud:5:30

Fimmtud:5:30

Laugard:10:00

Höfum nýlega bætt við mánudögunum og er stefnt á að hlaupa langt þann dag.

Kveðja Lísa.



Fundarboð fyrir Laugarvegshlaupið !!!

Nú styttist í Laugavegshlaupið sem dagsett er 18 Júlí 2009.

Eins og undanfarin ár hafa Frískir Flóamenn séð um vinnu við Laugavegshlaupið.  Er nú ráð að koma saman á fund og ræða málin.

Fyrsti fundur verður þriðjudaginn 9 júní að Birkivöllum 6 hjá Jóni og Elfu, strax að lokinni seinni æfingu.

Endilega reynið að mæta sem flest, því þetta árið hefur hlaupurum fjölgað til muna og okkur veitir ekki af starfsfólki. Grin

Kveðja Lísa

 


S.O.S

Óskum eftir starfsfólki til að aðstoða okkur í Úlfljótsvatnshlaupinu sem verður núna 06.06.2009.

Það er alltaf gaman að vinna við hlaup, mikil stemming og gleði í kringum þau.

Endilega hafið samband við okkur ef þið getið liðsinnt okkur.

Pétur: 8446617 og Lísa: 8579903.


Hlaupaplan 26.maí - 28.maí + Mývatnshlaupið

Sæl öll

Þá er komið að því, mývatnshlaupið er um næstu helgi.......

Planið fyrir vikuna er eftirfarandi.

Þriðjudagur 26.maí

Síðasta æfing undirritaðs á þessari vertíð

Upphitun frá sundhöll kl.18:05

Lagt af stað frá sundhöll 18:15

Farið frá sundlaug að Tryggvagötu Hlaupið að hringtorginu við Fsu. Farið inn Fossheiðina og að Eyravegi. Til hægri að Þóristúni. Inn Þóristún að brúnni og meðfram Árvegi, þar sem við gerum smá æfingar. Hlaupið að Byko og inn Engjaveg. (5 km að Sundhöll) Engjavegur alla leið að Eyravegi. Vinstri við Eyraveg og að Suðurhólum. Suðurhólar að Erlurima og þaðan að Langholti. Hægri við Langholtið og hlaupið aftur að Engjavegi og beygt þar í átt að sundlaug.

Fimmtudagur 28.maí

Votmúlahringurinn, litli eða stór. Þeir sem eru á leið á mývatn taka því rólega og fara í pottinn.

Laugardagur 30.maí

Mývatnshlaupið.........

Fyrir þá sem eru ekki á Mývatni

10km
Farið frá Sundhöll og eftir Tryggvagötunni alla leið að Suðurhólum. Beygt til hægri og hlaupið meðfram Suðurhólum alla leið að Eyrarvegi. Til hægri eftir Eyrarvegi og svo vinstri inn Fossveginn(aftur fyrir húsasmiðjuna). Hlaupið eftir Fossvegi og alla leið áfram inn Fossheiðina. Fossheiðin að Fsu og áfram eftir Langholtina að Byko. Frá Byko yfir Austuveg og meðfram ánni alla leið undir brúnna og framhjá kirkjunni. Síðan hlaupið inn Engjaveg og að Sundhöll.

Vil að lokum þakka fyrir veturinn og óska ykkur góðs hlaupasumars

kv. Bragi


Hlaupaplan 18. - 24.maí

Sæl Öll

11.dagar í Mývatn og allir með fiðring í maganum........... 

Hlaupaplan vikunnar er eftirfarandi:

Þriðjudagur 19.maí

Ég verð því miður fjarverandi vegna hinnar vinnunnar minnar en planið er eftirfarandi, mun hanga líka niðrí sundhöll.

Upphitun frá Sundhöllinni kl.18:05

Hlaupið af stað frá Sundhöll kl.18:15

Skokkum niður að Árvegi og að Byko. Hérna er sprett 1 bil milli ljósastaura og 2 skokkuð rólega, eftir Langholtinu og að Erlurima. Beygt til vinstri inn Erlurima og hlaupum að Suðurhólum. Eftir Suðurhólum  og inn Gagnheiðina. Hlaupum síðan eftir Eyrarvegi, undir brúnna og Árveginn að Sundhöll. um 8 km.
Þeir sem vilja hlaupa lengra halda áfram austur og fara annað hvort aftur hjá Byko eða fara Laugardælahringinn.

Teygjur við Sundhöll og síðan er frábært að fara í pottinn.

Fimmtudagur 21.maí Uppstigningadagur

10km
Farið frá sundlaug að Árvegi. Hlaupið að veitunum og beygt til vinstri. Laugardælahringurinn tekin að þjóðveginum. Hlaupið aftur í átt að Selfoss og beygt við Byko. Langholtið hlaupið að Erlurima og beygt þar inn að Suðurhólum. Hlaupið að Eyravegi, undir brúnna og Árveginn að bankavegi. Beygt til hægri að sundlaug.

Laugardagur 23.maí

Votmúlinn, litli eða stóri

Kveðja Bragi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband