Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hlaupum um jólin


Hlaupaæfingar um jól:
mánudag (Þorláksmesssu) kl. 14.30 
annan í jólum kl. 10.00

Næsta æfing er á laugardaginn nk. kl.10.00  

Frá sundlauginni eins og alltaf.

IMG 9218

 


Jólahlaup 2013

IMG 9187Hið árlega og óviðjafnanlega jólahlaup Frískra Flóamanna var í dag.  Frískir þeyttust inn og út um gluggann í miðbæ Selfoss og höfðu smá sprell. Komið var við í kirkjugarðinum og farið að leiði Þórs Vigfússonar heiðursforseta Frískra Flóamanna og tendrað kertaljós.  Að lokum var farið í Seylon og skipst á smápökkum. Þar voru Renuka og maður hennar tilbúin með léttar veitingar. Takk takk. Myndir í albúmi.

Jólahlaup fimmtudag 12. desember

Hið árlega jólahlaup Frískra Flóamanna verður fimmtudaginn 12. desember, lagt af stað frá sundlauginni  á hlaupatíma kl.17.15.  Munið eftir jólahúfum og litlum jólapakka (hámarksverð 500 kr.) Stutt hlaup en skemmtilegt.IMG 6712

Allir velkomnir að hlaupa með Frískum Flóamönnum

Hlaupaæfingar Frískra Flóamanna, undir styrkri,  stjórn Sigmundar Stefánssonar, hafa verið vel sóttar að undanförnu, um 30 manna kjarni hefur verið að mæta.  Nýlokið er vel heppnuðu byrjendanámskeiði svo enn bætist í hópinn.  Allir eru velkomnir að mæta á almennar æfingar hjá Frískum Flóamönnum, hlaupið er frá Sundhöll Selfoss þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.15, á laugardögum kl. 10 og sunnudögum kl. 10.30.IMG 6250

Sigrún sigraði í hálfmaraþoni kvenna

sigrun vedlaun 13

SIGRUN HAUSTMARATON 13

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigrún Sigurðardóttir í Frískum Flóamönnum var fyrst kvenna í hálfmaraþoni sem Félag maraþonhlaupara stóð fyrir í Reykjavík í dag. Sigrún lauk hlaupinu á 1:36:17 og bætti sinn fyrri tíma um nokkrar mínútur. Glæsilegt. Fjölmargir hlauparar tóku þátt en hlaupið var 1/2 og heilt maraþon. Aðstæður voru ekki þær bestu, svalt, nokkur vindur og hált á hluta leiðarinnar. Úrslitin má sjá hér; http://timataka.net/haustmarathon2013/urslit/?race=1&cat=f


HSK-met í maraþoni.

Bogga og Vesek, fyrsta kona og fyrsti karlMunchenmaraþon var í dag og tóku fjölmargir Íslendingar þátt, þar á meðal Borghildur Valgeirsdóttir HSK.  Bogga gerði sér lítið fyrir og setti HSK-met í maraþoninu, hljóp á 03:19:51. Þetta var hennar fyrsta maraþon. Glæsilegt hjá henni.

Fríska Sólheimahlaupið

IMG_8939IMG_8913Um 50 manns hlupu hjóluðu eða gengu í hinu árlega Fríska Sólheimahlaupi í blíðakaparveðri í dag. Hamarsmenn hlupu með okkur. Farið var frá Borg að Sólheimum. Framfarabikar Frískra Flóamanna var afhentur íbúa á Sólheimum. Það var Ólafur Benediktsson sem fékk bikarinn í ár.  Ólafur gengur mikið og að hans sögn gengur hann alla daga nema að hann tekur sér jólafrí.  Takk fyrir góðan dag.

Átta vikna byrjendanámskeið hefst 23. september

IMG 6232

Mánudaginn 23. september hefst hlaupanámskeið fyrir byrjendur undir leiðsögn Sigmundar Stefánssonar. Þetta er í þriðja sinn sem Frískir Flóamenn bjóða upp á slíkt námskeið og hafa þau notið mikilla vinsælda. Námskeiðið stendur í 8 vikur og verða tveir tímar í viku kl. 18:00 á mánudögum og kl. 17:15 á fimmtudögum. Mæting er við Sundhöll Selfoss. Námskeiðið hefst mánudaginn 23. september. Öllum er frjálst að mæta í fyrsta tímann til prufu. Þeir sem ætla að taka þátt í námskeiðinu skráni sig á netfangið friskirfloamenn1@gmail.com í síðasta lagi 26. september.   Gjald fyrir allt námskeiðið er kr. 5000. 


Fríska Sólheimahlaupið laugardaginn 28. september

IMG 6206Hið árlega Fríska Sólheimahlaup fer fram laugardaginn 28. sept nk. Hlaupið er frá Borg kl. 10 að Sólheimum, sem eru um 9 km, einnig er hægt að hjóla. Engin tímataka. Safnast verður í bíla og farið frá sundlauginni á Selfossi kl. 9:30. Eftir hlaup, sund og súpu verður framfarabikar Frískra Flóamanna afhentur íbúa á Sólheimum. Allir eru velkomnir, makar og vinir og aðrir hlauparar eða hjólarar.

Uppskeruhátíð FF 2013 í Eldhúsinu

Frískir Flóamenn fjölmenntu á uppskeruhátíð í Eldhúsinu á laugardaginn eftir Brúarhlaupið.  Snæddar voru kræsingar miklar, veittar viðurkenningar, haldnar tölur, sungið og spilað og haft gaman. Svanlaug fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir í flokki kvenn og Vigfús í flokki karla.  Sigrún var útnefnd besti kvenhlauparinn og Wieslaw besti karlhlauparinn.  Undirbúningsnefndin á þakkir skildar fyrir framtakið og nokkuð ljóst að uppskeruhátíð Frískra Flóamanna er komin til að vera.IMG_6344

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband