Leita í fréttum mbl.is

Frjálsíþróttaþing á Selfossi fjallaði um almenningshlaup

IMG 1402Dagana 16. og 17. mars var þing Frjálsíþróttasambands Íslands haldið á Selfossi. Almenningshlaup höfðu töluvert vægi á þinginu. Þar voru samþykktar reglur um hvernig standa skuli að götuhlaupum og ofurhlaupum. Þetta er til mikilla bóta þar sem slíkar reglur hefur vantað. Þá ákvað þingið að haldið verði meistaramót í 5 og 10 km götuhlaupum. Þetta er nýjung og munu þau fara fyrst fram í ár. Samþykkt var ályktun um aukna áherslu á almenningshlaup með það að markmiði að hlauparar sjái ávinning í að starfa innan sambandsins. Þá var fjallað um Íslandsmeistaramót í heilu og hálfu maraþoni og ákveðið að Reykjavíkurmaraþon verði framvegis Íslandsmeistaramót í heilu maraþoni.

Æfingaáætlun vikuna 13.-18. mars

Sælir félagar

Hér er áætlun vikunnar.

Sjáumst á morgun:)

Kv. Salóme


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Æfingaáætlun vikuna 5.-11.mars

Sælir félagar

Hérna er æfingaáætlun vikunna

Sjáumst á morgun:)

Kv. Salóme


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Nafnið Frískir Flóamenn

IMG 8980Fyrsta "óformlega" nafn hlaupahópsins var Hlaupahópurinn Týra nefndur eftir tíkinni Týru sem Þór Vigfússon átti og var stundum með á hlaupum, var hún einu sinni skráður þáttakandi í Brúarhlaupinu. Nafnið Frískir Flóamenn varð síðan til 11. ágúst 1998 þegar nokkra félaga í hópnum vantaði nafn á boðhlaupssveit í Orkuhlaupinu sem fram fór í Elliðaádalnum. Fyrst var nefnt Ferskir Flóamenn en úr varð Frískir Flóamenn sem Sveinn Sigurmundsson stakk uppá. Festist nafn þetta síðan við hlaupahópinn. Í boðhlaupssveitinni í Orkuhlaupinu voru auk Sveins bræður hans tveir Úlfhéðinn og Haraldur, Sigmundur Stefánsson og Ingvar Garðarsson. Þess má geta að félagarnir hlupu 3x3 km og 2x6,5 km á 1:26:55 mín og urðu í 6. sæti.

Æfingaáætlun vikuna 27.feb-4.mars

Sælir félagar

Hérna er áætlun vikunnar. Afsaka hér með fjarveru mína undafarnar æfingar, er búin að vera veik og mikið í skólanum!
Vona að allt hafi gengið vel á meðan ég var í burtu og að mætingin hafi verið góð:)

Hlakka til að sjá ykkur á morgun

Kv. Salóme


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband