Leita í fréttum mbl.is

Góður árangur hjá Sigrúnu í Köben

Sigrún önnur kona í markSigrún Sigurðardóttir var að ljúka maraþoni í Kaupmannahöfn.  Hún stóð sig vel, geystist um götur Kaupmannahafnar og endaði á tímanum 3.28.28 og var í 17. sæti í sínum flokki. Aldeilis frábært, þrátt fyrir að hellirignt hafi meðan á hlaupinu stóð.  Um 11.000 hlauparar mættu til leiks þar af yfir 30 íslendingar.

Fyrstur íslenskra karla var Stefán Guðmundsson á 2.37.58. Margrét Elíasdóttir var fyrst íslenskra kvenna á 3:15:23.

 



Intersporthlaupið undan vindi

 
 
IMG_7215
Intersporthlaupið undan vindi fór fram í dag en það er 10 km hlaup Frískra Flóamanna. Hlaupið er frá Intersporti á Selfossi niður Gaulverjabæjarveg.  Fremur hægur hliðarvindur var nánast alla leið en mótvindur í restina en samt féllu einhver persónuleg met enda brautin sennilegasta ein sú hraðasta á landinu. Fyrir upphaf hlaupsins minntist Sigmundur Stefánsson Þórs Vigfússonar eins af stofnfélögum Frískra Flóamanna með mínútu þögn áður en hlaupið var ræst en Þór lést fyrir stuttu. Hlaupið sem er löglega mæt fór í alla staði vel fram. Fyrst kvenna var Borghildur Valgeirdóttir á 42.14 og fyrstur karla var  Wieslaw Piotr Nieradko á 40.55 sem er Frískur Flóamaður en fleiri Frískir stóðu sig vel og voru að bæta sig. Þakkir til þeirra sem tóku þátt og aðstoðuðu. Intersport og MS eiga þakkir skildar fyrir sína aðkomu að hlaupinu. Myndir í myndaalbúmi. Úrslitin eru á hlaup.is.



Frískir Flóamenn í vormaraþoni

IMG 1436Vormaraþon var haldið í Reykjavík í dag. Hlaupið var heilt og hálft maraþon. Fjölmargir tóku þátt í heldur óhagstæðu veðri. Þrír Frískir Flóamenn tóku þátt.  Steini hljóp heilt á 3.21.56 og var fjórði í mark.  Wieslaw Piotr hljóp hálft á 1.31.14 og Vigfús á 1.50.58. Aldeilis flott hjá þeim.

INTERSPORTHLAUPIÐ UNDAN VINDI 11. MAÍ

Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn stendur fyrir Intersporthlaupinu undan vindi þann 11. maí nk. og hefst það kl. 11. Lend hlaupsins er 10 km og hefur hún verið löglega mæld.

Hlaupaleiðin er frá Intersporti [BYKO] á Selfossi um Larsenstræti og  Gaulverjabæjarveg.  Hlaupið hefst eða endar við BYKO, fer það eftir því hvort hagstæðara er eftir vindátt.  Hlaupaleiðin er um sléttlendi Flóans.

Forskráning er á hlaup.is og lýkur 9. maí kl. 21:00.  Skráning og afhending keppnisnúmera er í BYKO Selfossi frá kl. 16-18 10. maí.  Keppnisnúmer verður einnig hægt að nálgast á hlaupadegi frá kl. 9:30 í BYKO. Þátttökugjald er kr. 2.500. Rúta flytur keppendur að rásmarki, brottför er frá BYKÓ kl. 10:20.  Keppendur fá frían aðgang í Sundhöll Selfoss eftir hlaup.

Aldursskipting bæði hjá konum og körlum; 39 ára og yngri, 40-49, 50-59, 60 ára og eldri. 

Verðlaun verða fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki.

Sérverðlaun frá Intersport verða fyrir fyrsta karl og fyrstu konu.

Verðlaunaafhendig verður við BYKO að hlaupi loknu.

Tiðvalið hlaup til að bæta sig í 10 km hlaupi.

 Nánari upplýsingar veita  Leifur s: 842 3150 og Magnús s: 840 6320.

 

 


Sumardagurinn fyrsti

Frískir Flóamenn hlupu frá Sundlauginni á Selfossi að lauginni á Stokkseyri í dag í blíðskaparveðri en heldur svölu. Hlaupið var m.a. í tilefni af því að sumardaginn fyrsta fyrir 13 árum byrjaði Ingileif að stunIMG 9300da hlaup. Allir sælir eftir heitan pott í Stokkseyrarlauginni.  Ingvar skellti sér í ÍR hlaupið í Rvík og hljóp hratt að vanda. Úrslitn eru á hlaup.is.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband