Leita í fréttum mbl.is

10 km götuhlaup á landsmóti

 Tíu km götuhlaupið á landsmóti UMFÍ fór fram í dag í þokkalegu veðri. Nokkur vindur var en að mestu þurrt. Þátttaka var öllum opin. Hlaupið hófst og endaði á íþróttavellinum og hlaupið var um íbúðahverfi Selfossbæjar. Þátttakendur voru 35.  Landsmótsmeistari í kvennaflokki var Helen Ólafsdóttir sem hljóp á 38:21 og fyrstur karla var David Erik á 36:18. Fríski Flóamaðurinn Wieslaw Nieradko náði flottum tíma 41:07og var 7. í karlaflokki.  Vaskur flokkur Frískra Flóamanna sá um framkvæmd hlaupsins og tókst hún vel. Myndir í albúmi.IMG_7699

Landsmótshlaup á Selfossi 6. júlí opið öllum


 
IMG 1662Á Landsmóti UMFÍ á Selfossi 6. júlí nk. verður 10 km götuhlaup, sem er opið öllum til þátttöku. Ræsing og mark er inni á frjálsíþróttavellinum á Selfossi og er ræsing kl. 10. Leiðin er innanbæjar á malbikuðum göngustígum og stuttur kafli í íbúðargötu. Engin brekka er í brautinni og líkast til er hún ein sú flatasta á landinu. Hlaupið er fram og til baka sömu leið. Brautin verður mæld og tekin út af mælingarmanni frá FRÍ. Þátttökugjald er 3.000 kr sem er sama upphæð og í öðrum opnum greinum á Landsmótinu. Keppt er til stiga á hlaupinu. Skráning er hér á hlaup.is. Netskráningu lýkur föstudaginn 5. júlí kl. 21:00. Keppnisgögn eru afhent milli 8:30 og 9:30 á keppnisdag í húsi FSU sem er gult stórt hús nálægt íþróttavellinum. Þá verður líka hægt að skrá sigKeppt er í karla og kvennaflokki. Keppandi skal tiltaka við skráningu fyrir hönd hvaða sambandsaðila UMFÍ eða íþróttabandalags hann keppir.  Keppanda er heimil þátttaka án þess að tiltaka fyrir hönd hvaða aðila hann keppir en árangur hans reiknast þá ekki til stiga. Nú er um að gera að skrá sig, skella sér svo á landsmótið á Selfoss og bæta sig í 10 km hlaupi.

Frekari upplýsingar um hlaupið veitir: Vigfús Eyjólfsson 694 4093 vigfusey@gmail.com


Esjuhlaupið

Esjuhlaupið var í dag.  Farnar voru 1 til 10 ferðir. Vigfús fór 5 ferðir. Samtals hækkun og lækkun 6000m. Tíminn var 6 klst, 49 mínútur og nokkrar sekúndur. Bæting um 1klst og nokkrar sekúndur frá því í fyrra. Flott hjá Vigfúsi.

Bláskógaskokk

IMG_0198Bláskógaskokk fór fram í dag. Hlaupið var yfir gömlu leiðina yfir Lingdalsheiðina og endað, á Laugarvatni 16,1km. Einnig voru hlaupnir 5 km á Laugarvatni. 22 hlauparar tóku þátt, 15 konur og 7 karlar. Margrét Elíasdóttir var fyrst kvenna í 16 km og Róbert Gunnarsson í karlaflokki. Guðrún Óskarsdóttir Frískum Flóamönnum vann 5 km. Fyrstur Frískra Flóamanna í 16 km var Wieslaw Piotr sem hér er á myndinni. Ingileif Auðunsdóttir var fremst Frískra Flóakvenna í 16 km.

Úrslitin eru á hlaup.is. 


Sigrún fyrst kvenna í Hamarshlaupinu

Sigrún önnur kona í mark
Hamarshlaupið var haldið í gær.  Hlaupið er utan vegar inn Reykjadal innan við Heragerði um 25 km. Þáttakendur voru 76.  Sigrún og Renuka tóku þátt.  Sigrún gerði sé lítið fyrir og var fyrst kvenna á tímanum 2:08:03. Aldeilis flott það.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Frískir Flóamenn
Frískir Flóamenn

Frískir Flóamenn er hlaupahópur í Árborg. Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Farið er frá Sundhöll Selfoss.

Running club at Selfoss Iceland, running from Selfoss Swimming pool Tuesdays and Thursdays at 17:15 and Saturdays at 10:00. You are welcome.

Færsluflokkar

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband