Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2015
30.4.2015 | 21:12
Inresporthlaupið eins og vindurinn 1.maí
Fyrir þá sem ekki náðu að skrá sig í Intersporthlaupið eins og vindurinn í dag verður opið fyrir skráningun í fyrramálið frá kl.11 til 12.15 í Bykó/Intersport á Selfossi. Mjög góð veðurspá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2015 | 21:54
Hlaup og hlaupadagar á Selfossi
Samhliða hlaupinu okkar sem verður l. maí eru hlaupadagar í verslun Intersport á Selfossi. Nú er um að gera að skrá sig í hlaupið og versla hlaupafatnað eða skó í leiðinni á hagstæðum kjörum. Nánar um hlaupð í frétt hér að neðan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2015 | 15:42
Ingvar með HSK met í 5 km
Viðavangshlaup ÍR var haldið í 100. sinn á sumardaginn fyrsta. Hlaupnir voru 5 km um miðbæ Reykjavíkur. Tæplega 1200 hlauparar luku hlaupinu og hafa þeir aldrei verið fleiri. Ingvar Garðarsson var að fara sitt 35. hlaup og setti HSK met í flokki 55-59 ára. Hann kom í mark á 19.35 og var 5. í sínum flokki. Renuka hljóp á 23.49 og var 11. í sínum flokki. Magnús Ragnar og Hólmfríður sprettu einnig úr spori og náðu fínum tímum. Aldeilis frábært hjá þeim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2015 | 21:08
Intersporthlaupið eins og vindurinn 1.maí
Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn stendur fyrir Intersporthlaupinu eins og vindurinn þann 1. maí nk.og hefst það kl. 13:00 Hlaupaleið: Lengd hlaupsins er 10 km og er hún löglega mæld samkvæmt reglum FRÍ og á lista Frí yfir viðukennd hlaup. Hlaupaleiðin er milli Intersports [BYKO] á Selfossi og Timurhóls við Gaulverjabæjarveg. Hlaupið hefst eða endar við Intersport,fer það eftir því hvort hagstæðara er mtt. vindáttar. Hlaupaleiðin er um sléttlendi Flóans. Skráning: Forskráning er á hlaup.is og lýkur 30. maí kl. 21:00. Skráning og afhending keppnisnúmera er í Intersporti Selfossi frá kl. 16-18 þann 30. apríl. Þátttökugjald er kr. 2.500 og greiðist með peningum nema í forskráningu. Keppnisnúmer verður einnig hægt að nálgast á hlaupadegi frá kl.11:00 til 12:15 á sama stað. Rúta flytur keppendur að rásmarki, brottför er frá Intersport kl. 12:20. Flokkaskipting: Aldursskiping hjá konum og körlum; 39 ára og yngri, 40-49, 50-59, 60 ára og eldri Verðlaun: Verðlaun verða fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki. Vegleg sérverðlaun frá verða fyrir fyrsta karl og fyrstu konu. Einnig verða útdráttarverðlaun. Verðlaunaafhending verður við Intersport að hlaupi loknu. Frítt er fyrir þáttakendur sund í Sundhöll Selfoss að hlaupi loknu gegn framvísun keppnisnr. Tilvalið hlaup til að bæta sig í 10 km hlaupi, eða bara að fara sitt fyrsta keppnishlaup. Nánari upplýsingar eru í síma 840 6320 (Magnús).
|
|
Bloggar | Breytt 27.4.2015 kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2015 | 16:45
Frískir Flóamenn í Flóahlaupinu
Flóahlaupið var haldið laugardaginn 11. apríl sl. Veður var ekki upp á það besta norð vestan 12 m á sek og hiti nálægt frostmarki en þurrt. Fjöutíu og tveir hlauparar mættu til leiks og þar af hlupu 26 10 km. Hellisheiði lokaðist fyrr um daginn og hefur það og veðrið haft áhrif á þátttökuna. Átta Frískir Flóamenn mættu til leiks og sex þeirra komust á pall. Ingvar Garðarsson var annar í 10 km hlaupinu og sigraði 50 ára flokkinn. Þetta var 36 Flóahlaup Ingvars en hlaupið hefur verið haldið í 37 skipti, geri aðrir betur. Svanlaug var þriðja í 5 km kvenna og Óskar þriðji í 5 km karla. Sarah sigraði undir 39 ára flokk kvenna í 10 km, Renuka var önnur í 40 ára flokknum og Magnús annar í flokki 60 ára karla. Eins og alltaf svignuðu borðin í Félagslundi undan gómsætum veitingum sem svangir hlauparar átu af góðri list. Úrslitin í hlaupinu eru á hlaup.is.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið