Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015
28.1.2015 | 21:51
Ókeypis byrjendanámskeið hefst 17. febrúar
Frískir Flóamenn standa fyrir 10 vikna ókeypis hlaupanámskeiði fyrir þá sem eru að byrja að hlaupa eða hafa ekki hlaupið lengi. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 17.febrúar kl. 17:15, mæting er við Sundhöll Selfoss og verður síðan á þriðjudögum og fimmtudögum. Leiðbeinandi er Sigmundur Stefánsson. Nú er bara að láta drauminn rætast reima á sig skóna og mæta í hressandi útiskokk og að sjálfsögðu eru allir velkomnir, engin skráning, bara mæta.
Bloggar | Breytt 6.2.2015 kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2015 | 22:14
Vetrarstarf Frískra Flóamanna í fullum gangi
Vetrarstarf Frískra Flóamanna er nú í fullum gangi. Hlaupaæfingar undir styrkri stjórn Sigmundar Stefánssonar hafa verið mjög vel sóttar. Þrátt fyrir risjótt tíðarfar koma iðulega 15-20 manns á æfingar og stundum fleir. Æfingarnar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.15 og á laugardögum kl.10. Allir er velkomnir. Hlaupið er frá Sundhöll Selfoss. Nú er Þorrinn genginn í garð og þá styttist í hið árlega og óviðjafnanlega Þorrapizzuhlaup. Þá er fyrirhugað byrjendanámskeið á næstunni. Nánar um það síðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið