8.11.2011 | 22:11
Fjölmenni á fyrirlestri Kára Steins
Fjölmenni hlýddi á Kára Stein Karlsson langhlaupara halda mjög áhugaverðan fyrirlestu um langhlaup á vegum Frískra Flóamanna í Sunnulækjarskóla í kvöld. Kári Steinn sagði frá bakgrunni sínum og hvernig hann fékk áhuga á langhlaupum. Hann æfði ungur körfubolta og fótbolta og hljóp á æfingar. Fjórtán ára, í Brúrhlaupinu árið 2000, hljóp hann 10 km á rúmum 37 mínútum og þá varð ekki aftur snúið. Hann sagði frá mikilvægi næringar, hvíldar og hugarfars við æfingar og keppni. Ungur setti hann sér það markmið að hlaupa maraþon sem varð þó ekki fyrr en í haust, mörgum árum síðar. Hann leit á allan sinn hlaupaferil sem undirbúning fyrir maraþonið. Kári setti sér það markmið í sínu fyrsta maraþoni að ná lágmarki fyrir Ólimpíuleikana í London á næsta ári og það tókst. Geri aðrir betur. Sem lið í undirbúningi fyrir Ólimpíuleikana ætlar Kári að fara maraþon í Maiami í janúar nk. Þar hyggst Kári hlaupa enn hraðar en í Berlín.
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.