21.8.2011 | 14:36
Að loknu Reykjavíkurmaraþoni
Reykjavíkurmaraþon fór fram í blíðskaparveðri laugardaginn 20. ágúst. Frískir Flóamenn fjölmenntu og hlupu ýmist 10 hálft eða heilt maraþon. Steini fór sitt þriðja maraþon á árinu og á aðeins eitt eftir til að ljúka fimmunni, sem er fjögur maraþon og Laugavegurinn á sama ári. Vigfús og Ægir voru að fara sitt fyrsta maraþon og stóðu sig með príði. Kiddi Marvins fór einnig maraþonið. Ingileif hljóp hálft og það gerði Anna Gína einnig, var það hennar fyrsta hálfa. Birna, Renuka, Hrund, Magnús Öfjörð, Jón, Ingvar og Sigmundur runnu einnig hálft. Sigmundur var að bæta sig í hálfu, var á tímanum 1:28:15 og var með fyrstu mönnum í 50 ára flokki. Timi Sigmundar er sá fjórði besti sem íslendingur hefur náð í hálfu maraþoni í flokki 55-59 ára. Sveinn og Magnús létu sér nægja að fara 10 km, það gerðu Helgi, Elín, Eydís, Guðmundur Tryggvi, Linda, Hannes, Leifur, Aðalsteinn, Þórir og Daði sem var hraðastjóri fyrir 50 mín. Frískir Flóamenn hlupu til styrktar góðgerðarfélögum, flestir fyrir Parkinson samtökin og söfnuðu helling. Hafsteinn renndi sér hálft maraþon til styrkta samtökunum og kláraði með sóma. Tímarnir í hlaupinu eru á hlaup.is. Myndir eru í albúmi.
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.