22.8.2010 | 13:16
Að loknu Reykjavíkurmaraþoni
Reykjavíkurmaraþon var í gær í ágætu veðri þótt nokkur vindur væri og fremur kalt. Þátttaka Frískra Flóamanna var nokkuð góð og stóðu allir sig vel. Sumir voru að hlaupa sitt fyrsta keppnishlaup og margir að bæta tíma sína jafnvel gömlu jaxlarnir. Flestir fóru 10 km og hálft maraþon sumir boðhlaup, en Björk Steindórsdóttir var sú eina úr okkar hóp sem fór heilt og stóð sig með príði. Hafsteinn Jóhannesson fór 10 km og fór létt með. Úrslitin eru á hlaup.is. Til gamans má geta þess að Jón G. Guðlaugsson, sem er 84 ára og gamall sunnlendingur, fór heilt maraþon og lauk því á rúmum fimm tímum. Söfnunin fyrir Parkinsonsamtökin gengur vel og hafa fjölmargir lagt henni lið og sumir með háum upphæðum. Hægt að stiðja átakið fram á mánudagskvöld og eru þeir sem ekki hafa þegar gert það hvattir til þess, farið er inná vefinn hlaupastyrkur.is (sjá fyrri frétt). Myndir frá hlaupinu eru væntanlegar á vefinn.
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.