19.5.2010 | 17:33
Fróðleg erindi þeirra Gunnlaugs og Hafsteins
Gunnlaugur Júlíusson og Hafsteinn Jóhannesson héldu erindi a fundi í Selinu í gær 18. maí. Fundurinn var í tengslum við að Frískir Flóamenn hyggjast hlaupa til styrktar Parkinssonsamtökunum í næsta Reykjavíkurmaraþoni. Hafsteinn hélt erindi um Parkinsonsamtökin og reynslu sína af parkinsonsjúkdómnum og þakkaði hann þann áhuga sem Frískir sýndu þessu málefni. Þar kom m.a. fram að samtökin hefðu tapað miklu fé í bankahruninu. Gunnlaugur fjallaði um langhlaup sem lífsstíl. Hann hóf sinn hlaupaferil árið 1994 á því að hlaupa 3 km með syni sínum í Reykjavíkurmaraþoni. Eftir það varð ekki aftur snúið. Hann jók smám saman hlaupin og að lokum urðu langhlaup hans lífstíll. Gunnlaugur lýsti því hvernig hann hefði tekið sig á í matarræði, sem hefur skipt sköpum fyrir líðan og árangur. Á matseðli Gunnlaugs eru kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir. Hann borðar helst ekki kornvörur kartöflur eða hrísgrjón. Að auki notar hann Hörballife próteindrykki jafnt á undirbúningstímabilinu fyrir keppni og í keppni. Gunnlaugur sagði að sýn reynsla væri að ekki væri nóg að nærast eingöngu á kolvetnum í ofurmaraþonum, þar skipti miklu máli að innbyrða prótein. Hann sagði að mikilvægt væri að setja sér raunhæf markmið og að aga þyrfti til að ná þeim. Ljóst er af afrekum Gunnlaugs hann hefur þurft að sýna mikinn aga í undirbúningi hlaupa og í hlaupunum sjálfum.
Góður rómur var gerður af erindum þeirra Hafsteins og Gunnlaugs og urðu líflegar umræður í kjölfarið. Til stendur að fylgja þessum fundi eftir með frekari uppákomum og eru hugmyndir um það vel þegnar á póstfangið skolavellir12@simnet.is.
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.