Færsluflokkur: Bloggar
1.5.2022 | 08:33
Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
Keppt er í tveimur vegalengdum, 5 km og 10 km. Brautin er flöt og því vænleg til góðra afreka og hafa margir hlauparar náð sínum bestu tímum í hlaupum á Selfossi.
Nánar síðar.
Skráning í hlaupið fer fram á hlaup.is. Opið er fyrir skráningu til kl. 21:00 föstudagskvöldið 29. apríl 2022. Einnig verður hægt að skrá sig í versluninni Stúdíó Sport að morgni keppnisdags en þá hækka öll verð.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í báðum vegalengdum. Auk þess verður fjöldi útdráttarverðlauna frá ýmsum fyrirtækjum á svæðinu.
Rafræn tímataka verður í hlaupinu. Keppendur fá afhenta flögu sem þeir hlaupa með. Engin flaga - enginn tími!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2019 | 12:32
Nýr hlaupatími
Hlaupatími Frískra Flóamanna er núna
kl. 17:30 á þriðjudögum og fimmtudögum og kl. 10 á laugardögum.
Hlaupið er frá Sundhöll Selfoss.
Allir velkomnir bæði byrjendur og vanir hlauparar.
Ókeypis.
Góð hreyfing í góðum félagsskap.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2018 | 17:19
Af aðalfundi Frískra Flóamanna
Aðalfundur Frískra Flóamanna var haldinn í Selinu 13. mars sl. Magnús fór yfir skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta í starfi hópsins milli aðalfunda. Jötunnhlaupið, sem haldið var 1. maí í samstarfi við Jötunn Vélar, er arftaki Intersportshlaupsins. Hlaupnir voru 5 og 10 km innanbæjar á Selfossi. Frískir aðstoðuðu að venju við Laugavegshlaupið í samstarfi við Björgunarfélag Áborgar. Í smíðum er endurnýjun á samningi við ÍBR um aðstoð við hlaupið og er Björgunarfélag Árborgar nú aðili að samningnum. Samningurinn er til 3ja ára og samkvæmt honum verður 45% hækkun á greiðslum til félagsins á samningstímanum. Uppskeruhátíð var í október og þar voru veittar viðurkenningar fyrir árangur í hlaupum á árinu. Strandfáni með merki FF er í pöntun og styttist í að nýjir hlaupagallar verði afhentir. Abba fór yfir reikninga, þar kom fram að helstu tekjurnar voru af Laugavegshlaupinu en einnig varð nokkur afgangur af Jötunnhlaupinu. Helstu útgjöld eru laun til þjálfara. Nokkur afgangur var af rekstrinum á sl. ári. Þá var gengið til kosninga. Anna Björg og Magnús gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Í þeirra stað komu inn í stjórnina Eydís Katla og Bárður og var Eydís kjörin formaður. Í stjórn eru núna auk þeirra, Aðalbjörg sem er gjaldkeri, Sigurður sem er ritari og Svanlaug. Rædd var hlaupaferð til Tallin í haust og stefnt að annari ferð á árinu 2019. Fundurinn var vel sóttur en 20 Frískir mættu á fundinn.
Bloggar | Breytt 15.3.2018 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2018 | 16:44
Aðalfundur 13. mars í Selinu
Aðalfundur Frískra Flóamanna verður haldinn í Selinu 13. mars nk. og hefst hann kl. 20:00. Förum yfir það markverðasta í starfsemi félagsins á sl. ári, greinum frá stöðu fjármála, ræðum hvað er framundan og önnur mál, og svo eru kosningar til stjórnar. Vonumst til að sjá sem flesta.
Fh. stjórnar Magnús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2018 | 14:19
Jötunnhlaupið 1. maí.
01.05.2018 |
Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn, í samstarfi við Jötunn Vélar, stendur fyrir Jötunnhlaupinu á Selfossi þann 1. maí nk. og hefst það kl. 13:00. Vegalengdir Vegalengdir 10 km og 5 km Hlaupaleiðir Lengd beggja hlaupa er löglega mæld samkvæmt reglum FRÍ. Hlaupin hefjast og enda við húsakynni Jötunn Véla á Selfossi. Brautirnar eru marflatar og hlaupið er á bökkum Ölfusár. Tímataka Tímataka verður með flögum. Skráning Forskráning er á hlaup.is og lýkur 30. apríl kl. 21:00. Einnig verður hægt að skrá sig í Jötunn Vélum frá kl. 11 á hlaupadegi, þá verða keppnisnúmer jafnframt afhent. Skráningu lýkur kl. 12:20.
Þátttökugjald Þátttökugjald er kr. 2.500 fyrir 16 ára og eldri en kr. 1.500 fyrir 15 ára og yngri. Við skráningu á staðnum er einungis tekið við seðlum, enginn posi á staðnum. Keppendur fá frían aðgang í Sundhöll Selfoss eftir hlaup.
Flokkaskipting Aldursskipting hjá konum og körlum. 5 km 15 ára og yngri 16 og eldri ára 10 km 39 ára og yngri 40-49 50-59 60 ára og eldri
Verðlaun Verðlaun verða fyrir fyrsta keppenda í hverjum flokki. Vegleg sérverðlaun frá Jötunn Vélum verða fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hvorri vegalengd um sig. Jafnframt verða útdráttarverðlaun.
Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veita Aðalbjörg s:820 6882 og Magnús s:840 6320
Hér er tengill á kort af hlaupaleiðinni: https://www.google.com/maps/d/edit?mid=1ihcNTOIhRJLnfqWly0mX2fwR0cw&ll=63.93325663777965%2C-21.007999700000028&z=14 |
Bloggar | Breytt 6.3.2018 kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2018 | 20:54
Þorrablót
Þorrablót Frískra Flóamanna var haldið í Selinu 6. febrúar sl. Bornar fram pizzur og þorramatur með. Blótið var vel sótt og tókst vel. Skemmtilegur siður sem við þurfum að viðhalda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2017 | 14:02
Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Frískra Flóamanna var haldin í Tryggvaskála 20. október sl. Eftir gómsætan málsverð happdrætti og Fríska hlaupabúningasýningu voru að venju veittar viðurkenningar til hlaupara. Kvenhlaupari ársins er Arna Ír. Hún hefur verið mjög ötul við æfingar á árinu og náði feikna góðum árangri í keppnishlaupum bæði í götuhlaupum og utanvega. Fór 21 km í Miðnæturhlaupinu og náði þar sínum besta tíma. Fór Laugaveginn og varð 3. í sínum aldurflokki og bætti tíma sinn þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Hún setti tvö HSK og Selfossmet í sínum aldursflokki á árinu, í hálfmaraþoni í Reykjavík og í Laugavegshlaupinu. Vigfús var valinn karlhlaupari ársins. Hann byrjaði að stunda hlaup árið 2009 og fór þá fljótlega að hlaupa með Frískum Flóamönnum. Hefur verið mög duglegur að taka þátt í hlaupum, lætur sig yfirleitt aldrei vanta. Tók í ár nokkur Poweradehlaup, fór í Flóahlaupið, Jötunnhlaupið, Kambahlaupið, Esjuhlaupið, Icelandairhlaupið, Ölkelduhlaupið, Bláskógaskokkið, Snæfellsjökulshlaupið, Laugaveginn, 21 km í Reykjavíkurmaraþoni, 24 km í Hengil Ultra og hálft maraþon í haust í Reykjavík, svo eitthvað sé nefnt. Vigfús stóð sig vel í þessum hlaupum og á Laugaveginum bætti hann tíma sinn um meira en 20 mín þrátt fyrir mótvind og erfiðar aðstæður. Óskar fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir karla. Óskar er búinn að hlaupa með Frískum í mörg ár mætt vel á æfingar og sýnt miklar framfarir. Hét því fyrir nokkrum árum að fara Laugaveginn 2017. Lagði þess vegan áhersku á utanvegahlaup í ár fór m.a. í Esjuhlaupið og stóð sig vel. Fór á Laugarveginn en varð því miður að hætta var óheppinn með erfiðar aðstæður. Auður fékk viðurkenningu fyrir mestu framfarir kvenna. Auður hefur verið mjög dugleg við æfingar á árinu og mætt vel í hópinn. Lagði sérstaka áherslu á utanvegahlaup og fór vítt og breitt um landið til að taka þátt í utanvegahlaupum. Fór m.a. í Icelandairhlaupið, Gullsprettinn, Esjuhlaupið, Snæfellsjökulshlaupið, Jökulsárhlaupið og 10 km í Reykjavíkurmaraþoni og náði þar sínum besta tíma. Í skenmmtinefnd voru Dýrfinna, Eydís Katla og Össur og gaf hún kost á sér áfram nema að í stað Össurar kemur Abba. Þakkir skemmtinefnd og til hamingju hlauparar. Myndir í albúmi.
Bloggar | Breytt 24.10.2017 kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2017 | 16:27
Uppskeruhátíð 20. október
Skemmtinefndin boðar uppskeruhátíðin í Tryggvaskála föstudaginn 20. okt. kl. 20:00. Upphitun hefst hins vegar kl.18:00 í Álftarima 30(Dýrfinna) og allir vita að upphitun er nauðsynleg ð Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir neðan. Verð kr. 6.800,- á mann(greiðist í Tryggvaskála) Skráningu lýkur kl. 21 miðvikudagskvöldið 18. okt.
Matseðill:
Lambahryggvöðvi og lambarillette m/gulrótamauki, hægelduðu rótargrænmeti, spínat parmesan kartöflupressu og blóðbergsgljáa
&
súkkulaðimús
pistasíuís, ristaðar kókosflögur og jarðarber
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2017 | 16:25
Fríska Sólheimahlaupið og framfarabikar FF
Fríska Sólheimahlaupið fór fram laugardaginn 7. október í fínu veðri. Hlaupið og hjólað var frá Borg í Grímsnesi og að Sólheimum sem er um 9 km, engin tímataka. Að því loknu afhentu Frískir Flóamenn bikar til þess íbúa á Sólheimum sem sínt hefur mestar framfarir í hreifingu á árinu. Að þessu sinni var það Ólafur Hauksson sem hlaut bikarinn en hann er mjög duglegur að hreifa sig og þarf litla hvatningu, en er hvatning fyrir aðra. Hægt er að fullyrða að hann hreifi sig manna mest, í vinnu og utan. Hann er alinn upp á göngu og útivist, þar sem faðir hans er mikill útivistarmaður og hlaupari. Ólafur er góður sundmaður, göngumaður og hjólagarpur. Hann er einstaklega duglegur í umhverfismálum og er með hugan við endurvinnslu alla daga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2017 | 21:10
Frískir á Laugaveginum og Vesturgötunni
Laugavegshlaupið fór fram við frekar erfiðar aðstæður í gær, laugardaginn 15. júlí sl. Fremur svalt var og vindur í fangið stóran hluta leiðarinnar. 486 hlauparar lögðu af stað úr Landmannalaugum en 430 komu í mark í Þórsmörk, hafa þeir aldrei verið fleiri (408 luku í fyrra). Sigurvegarinn í kvennaflokki var Arden Young frá Kanada á 5:12:01. Sigurvegari í karlaflokki var Þorbergur Ingi Jónsson á 4:13:25 sem er nokkuð frá hans besta. Sjö Frískir garpar tóku þátt og stóðu sig vel. Arna Ír var þriðja í sínum aldursflokki á 6:34:06 og var að bæta tíma mettíma sinn frá í fyrra þrátt fyrir erfiðar aðstæður. 41 Frískir Flóamenn og þeirra félagar og 10 úr Björgunarfélagi Árborgar stóðu vaktina, þjónustuðu hlauparana og hvöttu þá til dáða. Allt gekk vel. Þetta er mikil og fórnfús vinna en þegar allir leggjast á eitt að skila sínu sem best verður árangurinn eftir því.
Frískir voru ekki bara á Laugaveginum þessa helgi. Sigrún fór í Vesturgötuna og var fyrst kvenna í 45 km á nýju brautarmeti, glæsilegt það. Björk og Hildur hlupu líka, þrír af sjö kvenhlaupurum voru Frískir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið