7.11.2011 | 20:02
Æfingaáætlun vikuna 7.-13. nóvember
Sælir félagar:)
Hérna kemur áætlun vikunnar. Ég er loksins komin heim en því miður er ég í skólanum til 18 á morgun og kemst því miður ekki
á æfingu en skv. stundatöflu á þetta að vera eina æfingin sem ég missi af fram að jólafríi. Ég kem samt á fyrirlesturinn annað kvöld og hitti ykkur kát þar:)
Gangi ykkur vel á morgun
Kv. Salóme Rut
Þriðjudagurinn 8. nóvember
Bæjarhringur (cirka 8km)- Rólegt hlaup + vaxandi 1-2km í lokin
Upphitun: Hlaupið eða gengið rólega niður að Árvegi
Aðalþáttur: Hlaupið rólega en aukið hraðann þegar að um 1-2km eru eftir af leiðinni og klárað hlaupið á ágætis hraða.
Niðurlag: Gengið einn hring í kringum sundhöllina og teygt vel á.
Leiðin: Sundhöll-Bankavegur-Árvegur-Heiðmörk-Suðurhólar(ath malarvegurinn)-Fosslandið-Árvegur-Bankavegur-sundhöll
Hægt er að fara styttra t.d. með því að fara Tryggvagötuna að sundhöll(sirka 5km) eða Eyraveginn(sirka 7km).
Fimmtudagurinn 10. nóvember
Vallaræfing (cirka 5-8km)- Vaxandi hlaup
Upphitun: Hlaupið Austurveginn og Engjaveginn á íþróttavöllinn
6-10 hringir vaxandi hlaup á vellinum. Fyrstu 100m eru tiltölulega rólegir og síðustu 100m frekar hraðir(hver hringur er 400m). Á milli hringja er smá hvíld eða ganga u.þ.b 30sek-1mínúta.
Niðurlag: Hlaupið að sundhöll, gengið einn hring og teygt vel á.
Laugardagurinn 12. Nóvember
Langt hlaup-rólegt (8-15km)
Að sjálfsögðu er leiðin ykkar val en ég mæli með að fara í skógræktina eða Votmúlann því nú er farið að dimma og þá erum við ekkert mikið að fara út fyrir bæinn á virkum dögum.
Muna að ganga einn hring og teygja vel á
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2011 | 16:04
Nýtt útlit á síðunni

Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.10.2011 | 16:06
Æfingaáætlun vikuna 31.okt-6.nóv
Æfingaáætlun næstkomandi viku(31.okt-6.nóv).
Þriðjudagurinn 1. nóvember
Skógarhlaup- stuttir sprettir
Hlaupið rólega yfir í skógrækt. Í skógræktinni eru síðan teknir 1-3 hringir,
fer eftir hverjum og einum hvað hann vill fara langa vegalengd.
Teknir hraðir en stuttir sprettir inn á milli, þið ráðið hversu langt og hve oft.
Niðurlag: Hlaupið rólega að sundhöll, genginn einn hringur og teygt vel á.
Fimmtudagurinn 3. nóvember
Vallaræfing-tempó
Upphitun: Hlaupið rólega eftir Austurvegi inn á Engjaveg og inn á íþróttavöllinn.
8-10x400metrar á vellinum. Tempóhlaup, nokkuð hratt
-Eftir 2. hring er stoppað og teknar 30 kviðæfingar
-Eftir 4. hring er stoppað og teknar 15 armbeygjur(má vera á hnjánum)
-Eftir 6. hring er stoppað og tekin 12 froskahopp
-Eftir 8. hring er stoppað og teknar 15 bakfettur
-Eftir 10. hring er stoppað og tekin 30 framstig (15 á hvorn fót)
Einn hringur rólega í lokin
Niðurlag: Hlaupið aftur að sundhöll. Hægt að taka smá hring eftir Engjavegi, Langholti og Austurvegi.
Gengið einn hring í kringum sundhöll og teygt vel á.
Laugardagurinn 5. nóvember
Langt hlaup-rólegt
Veglengd á bilinu 8-16km
Leiðin er ykkar val
Muna að ganga einn hring og teygja vel eftir á:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2011 | 20:35
Kári Steinn heldur fyrirlestur 8. nóvember

Stórhlauparinn Kári Steinn Karlsson ætlar að koma til okkar þriðjudaginn 8. nóvember og halda fyrirlestur um langhlaup. Fyrirlesturinn verður í Sunnulækjarskóla á Selfossi og hefst hann kl. 20.
Kári Steinn er fremsti langhlaupari íslendinga um þessar mundir, á Íslandsmet í 5.000m, 10.000m, hálfmaraþon, maraþoni, 3.000m innanhús og 5.000m innanhús.
Kári Steinn ætlar m.a. að tala um bakgrunn sinn og hlaupaferil, æfingar, matarræði, hugarfar og hvað er framundan. Hann fjallar einnig um undirbúning sinn fyrir Berlínarmaraþonið þar sem hann sló Íslandsmetið í maraþoni og tryggði sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London 2012, en þetta var hans fyrsta maraþon. Kári Steinn er fæddur árið 1986, hann hefur verkfræðipróf frá Berkeley í Kaliforníu þar sem hann æfði og keppti í 4 ár. Fyrirlesturinn er opin öllum og aðgangur er ókeypis.
Bloggar | Breytt 3.11.2011 kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2011 | 11:39
Æfingaáætlun vikuna 24. okt -30. okt
Æfingaáælun vikunnar.
Gangi ykkur vel og munið eftir endurskinsvestunum:)
Kv. Salóme
Þriðjudagurinn 25. október
Hringur um bæinn
-Vaxandi
-Skiptið leiðinni í 3 hluta. Fyrsti hluti er hægur svo bætist alltaf við, þannig að þriðji og síðasti hlutinn er hraðastur.
Ef allur hringurinn er farinn(sundhöll-Árvegur-Heiðmörk-Langholt-Erlurimi-Suðurhólar-Fosslandið-sundhöll) er hann cirka 8km.
En hægt er að stytta hann á mörgum stöðum t.d. Tryggvagatan(Það eru cirka 5km) eða Eyrarvegurinn og sleppa Fosslandinu
(það eru cirka 7km). Síðan er hægt að lengja hann með því að fara út fyrir á og taka einn hring(miðtún-ártún) Það eru cirka 10km
Genginn einn hringur í kringum sundhöllina og teygt vel á, í lokin:)
Fimmtudagurinn 27. október
Vallaræfing
Upphitun: Hlaupið rólega upp á völl(Austurveg og Engjaveg)
Aðalþáttur: 6-10 hringir(200m hægt og 200m rólega)
-Fjöldi hringja fer eftir getu hvers og eins, verið samkvæm sjálfum ykkur:)
Niðurlag: Hlaupið rólega að sundhöll. Ganga einn hring í kringum laug og teygja vel á. Cirka 5-7km
Laugardagurinn 29. október
Langhlaup-Rólegt
-Á bilinu 7-14km(Eftir því hvað við á hjá hverjum og einum)
Leiðin er ykkar val:)
Muna að ganga hring í kringum laug og teygja vel á:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 1.5.2022 Stúdíó Sport hlaupið 1. maí
- 13.11.2019 Nýr hlaupatími
- 14.3.2018 Af aðalfundi Frískra Flóamanna
- 6.3.2018 Aðalfundur 13. mars í Selinu
- 3.3.2018 Jötunnhlaupið 1. maí.
Eldri færslur
2022
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Tenglar
Mínir tenglar
- Daglengd
- Hlaupameiðslin
- Frískir Flóamenn á Facebook Fésbókarsíða Frískra Flóamanna
- http://www.hlaup.is
- Skokkhópur Hamars í Hveragerði
- http://laugaskokk.is
- http://marathon.is
- Sænsk hlaupasíða
- Norsk hlaupasíða
- Íþróttafréttir
- Loftmynd af Selfossi
- Sigmundur i Ironman Frásögn Sigmundar Stefánssonar af Ironman í Frankfurt 2008
- Veðrið